Topic: Glasafrjóvgun
Sælar allar.
Datt í hug að kalla eftir reynslusögum frá ykkur af glasafrjóvgun. Maður hefur stundum heyrt að konum með endometriosu gangi eitthvað verr í glasafrjóvgun en öðrum og ég myndi gjarnan vilja heyra frá einhverjum ykkar sem farið hafa í glasafrjóvgun. Auðvitað er ég að vona að það séu einhverjar góðar sögur þarna úti um glasafrjóvgun sem bar árangur!
Ég hef sjálf farið tvisvar. Fyrst fyrir mörgum árum en þá komu engin egg svo það var bara hætt. Svo fór ég aftur fyrir tæpu ári og var settur upp ágætis fósturvísir en niðurstaðan varð samt neikvæð. Nú gæti ég trúað að ég fari aftur með haustinu.
Takk, takk, :-)
Sóllilja.