Topic: Enhver með reynslu að frjósemis-/glasameðferð í Art medica?

Ég bý erlendis og er að spá í að fara kannski í glasafrjóvgun á Íslandi. Kerfið hér úti er nefnilega mjög hægvirkt en ég nýorðin 37 ára og má því engan tíma missa.
Fyrir rúmu hálfu ári fékk ég það mat hérna úti að möguleikar mínir á að verða ólétt með glasafrjóvgun væru í mesta lagi 5%. Það var af því ég var með hátt FSH og hef áður farið í eina glasameðferð og þá frjóvgaðist ekkert egg af þeim 6 sem voru heimt. Við misstum næstum vonina eftir þessa hrakspá og vorum farin að hugsa um eggjagjöf. En svo fékk ég allt aðrar og miklu betri niðurstöður úr næstu blóðprufum sem voru teknar og nú segja læknarnir að ég eigi betri líkur. Ég er samt ekki enn búin að fá að vita nákvæmlega hversu miklar. Þetta er farið að verða frekar frústrerandi ferli, að bíða eftir að fá upplýsingar. Ég fæ ráðgjöfina fría (þess vegna er þetta svona seinvirkt) en þarf að borga glasameðferðina sjálfa og kemst þá strax að.
Er einhver af ykkur sem hefur farið í glasameðferð í Art medica og hversu vel rannsaka þeir mann og meta líkurnar á undan meðferðinni? Málið er að maður er búinn að heyra sögur af fólki (erlendis) sem kannski fer í meira en 10 árangurslausar meðferðir. Ég og maðurinn minn erum ekki tilbúin að leggja slíkt á okkur þó að auðvitað geri maður ýmislegt til að reyna að eignast barn.
Þær sem hafa farið í glasa á Íslandi, hvernig fannst ykkur það? Og veit einhver eitthvað um þann möguleika að fá gefins egg frá frá ókunnum eggjagjafa ? Ég hef heyrt að það taki allt að 2 ár.
Svo væri gaman að vita ef einhver sem er svona í eldri kantinum eins og ég og með mikla endómetríósu hefur farið í glasameðferð sem tókst.

Re: Enhver með reynslu að frjósemis-/glasameðferð í Art medica?

Sæl Röskva,

við höfum ekki fókuserað sérstaklega á glasafrjóvgun þar sem við erum í samstarfi við Tilveru, félags áhugafólks um ófrjósemi. Ég bendi þér á síðuna þeirra, tilvera.is og á spjallið þeirra þar. Það spjall er lokað þar sem oft er verið að ræða þar viðkvæm mál og þar gætirðu því fengið betri upplýsingar. Þá bendi ég þér einnig á að senda póst til Tilveru í gegnum síðuna en stjórnin þar hefur verið endókonum afar hjálpleg.

Bestu kveðjur,
Erla