Topic: Pillumeðferðir
Sælar stúlkur,
enn og aftur er ég á höttunum eftir upplýsingum, hef núna farið til tveggja kvensjúkdómalækna, þar sem ég var ósátt með þann fyrri og hvað hún gat lítið fyrir mig gert!
En eftir að ég kláraði zoladex meðferð og byrjaði aftur á túr byrjaði ég á pillunni microgyn og tók hana stanslaust, það virkaði fínt í tæpa tvo mánuði, svo var ég á stanslausum vægum túr í mánuð án þess að nokkuð rénaði, þá ráðlagði læknirinn mér að taka 2 töflur í nokkra daga, sem varð til þess að blæðingarnar hættu, svo minnkaði ég aftur niður í eina töflu, og blæðingarnar endurtóku sig. Þá setti hún mig á tvær pillur og tek núna eina töflu af hvorri tegund daglega (marvelon og mercilon).
Svo ræddi ég við kvensjúkdómalækni 2, honum fannst það vera full stór skammtur að taka svona stóran skamt og mælti með brjóstapillunni cerazette (en gæti aftur lent í milliblæðingum á þeirri pillu). Samt sá hann núna í ómskoðun að blaðra var komin á annan eggjastokkinn 1,5 cm í þvermál. Í ofanálag er leghálsinn óvenjubólginn...
Ég var orðin ótrúlega pirruð á þessum endalausu blæðingum og veseni - hvað hefur reynst ykkur best konur góðar, pillur með tveimur hormónum (venjulega pillur) eða pillur með einu hormóni sem virkar eins og prógesterón (brjóstapillur).
Og hvað á maður að bíða lengi eftir að stanslausar blæðingar gangi yfir - ég var allavega orðin líkamlega og andlega búin á því eftir þennan rúma mánuð, blóðlítil í þokkabót - orðin fölari en allt fölt og óhemjuþreytt í lok vinnudags.
kv.
vandræðagripurinn